Sumarnámskeið 2026

Stuttmyndagerð

Viltu prufa að búa til bíó?

Á námskeiðinu fá nemendur innsýn inn í heim kvikmyndagerðarinnar. Þau læra ýmislegt skemmtilegt tengt kvikmyndagerð, á sama tíma og þau skrifa, leikstýra og framleiða sína eigin stuttmynd undir handleiðslu fagfólks í bransanum. Lögð verður áhersla á sköpunargleði og samvinnu. Í lok námskeiðsins fá nemendur að taka upp sína eigin stuttmynd með alvöru tökumanni, myndin verður síðan klippt og send heim í tölvupósti síðar. Námskeiðið hentar öllum krökkum óháð reynslu.

Kennt er í 5 daga, 4 klukkustundir á dag.

Aldur: 7-9 ára og 10-12 ára.

Verð: 35.000

Námskeiðið verður kennt víða um Höfuðborgarsvæðið í sumar. Nánari upplýsingar er snúa að tímasetningum og staðsetningum koma í ljós fljótlega. Þangað til er hægt að skrá sig á póstlista til að fá tilkynningu þegar námskeiðið kemur í sölu.

Kennarar: Alexander Beck Þórólfsson, Arnar Már Vignisson og Júlíana Kristín Liborius Jónsdóttir

Kvikmyndaleikur

Viltu læra að leika fyrir framan myndavél?

 Á námskeiðinu læra nemendur grunnatriði í kvikmyndaleik auk þess að taka upp sína eigin senu sem þau fá síðan að eiga. Áhersla verður lögð á persónusköpun og  að líða þægilega fyrir framan myndavél. Mikilvægur fylgifiskur þess er að líða vel í eigin skinni og verður því einnig unnið með valdeflingu. Námskeiðið er kennt af fagfólki í kvikmynda- og sviðslistageiranum.

Kennt er í 5 daga, 4 klukkustundir á dag.

Aldur: 10-12 ára.

Verð: 35.000

Námskeiðið verður kennt víða um Höfuðborgarsvæðið í sumar. Nánari upplýsingar er snúa að tímasetningum og staðsetningum koma í ljós fljótlega. Þangað til er hægt að skrá sig á póstlista til að fá tilkynningu þegar námskeiðið kemur í sölu.

Kennarar: Júlíana Kristín Liborius Jónsdóttir og Alexander Beck Þórólfsson

Handritanámskeið

Viltu læra að skrifa bíómynd?

Á námskeiðinu læra nemendur grunnatriði í frásagnarlist og að skrifa sitt eigið handrit. Unnið verður í gegnum leiki og alvöru tól sem fagmenn í handritaskrifum nota. Námskeiðið byrjar á hugmyndavinnu og endar á fullskrifuðu stuttmyndahandriti. Unnið verður með sköpunargleði og að finna sjálfstraustið í að standa með sínum eigin hugmyndum. Í lok námskeiðsins verður leiklestur á handritunum þar sem forráðamönnum og fjölskyldu er boðið að koma og hlusta á. Námskeiðið hentar öllum krökkum óháð reynslu.

Kennt er í 5 daga, 4 klukkustundir á dag.

Aldur: 10-12 ára.

Verð: 35.000

Námskeiðið verður kennt víða um Höfuðborgarsvæðið í sumar. Nánari upplýsingar er snúa að tímasetningum og staðsetningum koma í ljós fljótlega. Þangað til er hægt að skrá sig á póstlista til að fá tilkynningu þegar námskeiðið kemur í sölu.

Kennarar: Arnar Már Vignisson og Alexander Beck Þórólfsson