Markmiðið með bíóklúbbi barnanna er að kynna börn fyrir töfrum kvikmyndagerðar á skemmtilegan og skapandi hátt. Öll námskeiðin í klúbbnum eru kennd af fagfólki sem starfar í geiranum, því við ætlum að gera alvöru stöff!
Þó aðalmarkmiðið í bíóklúbbnum sé að hafa gaman, enda öll námskeiðin á eitthverskonar afurð. Í lok námskeiða fá börnin annaðhvort myndefni eða eigið handrit sem þau geta tekið heim og átt til minninga.
Námskeið á vegum Bíóklúbbsins henta öllum börnum sem hafa áhuga á því að læra meira um kvikmyndagerð, skapa eða bara að prufa eitthvað nýtt og skemmtilegt!