Kennararnir okkar

Júlíana Kristín Liborius Jónsdóttir

Júlíana Kristín útskrifaðist úr leiklistarskólanum Copenhagen International School of Performing Arts árið 2019. Síðan þá hefur hún starfað fyrir hina ýmsu sviðslistahópa, framleiðslufyrirtæki og stofnanir sem leikkona, leikstjóri og verkefnastjóri. Með fram því starfaði Júlíana sem leiklistarkennari hjá Leynileikhúsinu í 5 ár. Þar að auki hefur hún kennt leiklist í Laugarnesskóla, hjá Klifinu og ýmis námskeið á eigin vegum bæði fyrir börn og fullorðna. Júlíana er einnig með meistaragráðu í menningarstjórnun og sér í dag um framleiðslu fyrir framleiðslufyrirtækið Beck&Liborius.

Stofnandi og leiklistarkennari

Alexander Beck Þórólfsson

Alexander Beck lauk námi við Kvikmyndaskóla Íslands í leikstjórn og framleiðslu árið 2021. Síðan þá hefur hann starfað í kvikmyndageiranum bæði sem leikstjóri og hugmyndasmiður og í við leikmyndavinnu. Alexander stundar meistaranám í listkennslu við Listaháskóla Íslands þar sem hann leggur áherslu á kennslu í kvikmyndalist. Hann starfar einnig sem listrænn stjórnandi og leikstjóri hjá framleiðslufyrirtækinu Beck&Liborius.

Stofnandi og kennari í leikstjórn og stuttmyndagerð

Arnar Már lauk námi við Kvikmyndaskóla Íslands í leikstjórn og handritaskrifum árið 2020. Síðan þá hefur hann starfað sem handritshöfundur, framleiðandi og handritaráðgjafi í ýmsum verkefnum og unnið til þónokkura verðlauna. Arnar kenndi handritaskrif við Kvikmyndaskóla Íslands í 6 ár, hefur stýrt handritasmiðjum á kvikmyndahátíðum og haldið handritanámskeið fyrir þroskahamlaða einstaklinga. Arnar stundar nú sjálfur meistaranám í listkennslu við Listaháskóla Íslands.

Stofnandi og kennari í handritaskrifum og stuttmyndagerð

Arnar Már Vignisson