Haustönn Bíóklúbbs barnanna

Viltu læra að búa til bíó eftir skóla?

Skráning

Aldur: 10 - 14 ára

Verð: 69.000 (Hægt að dreifa á 1-3 greiðslur)

Tímasetning: Þriðjudagar klukkan 16.00 - 18.00

Dagsetningar: 22. september - 1. desember (ath frí í vetrarfrísviku grunnskóla)

Staðsetning: Menntasetrið við Lækinn, Skólabraut 3, Hafnarfirði

Kennarar: Alexander Beck Þórólfsson, Júlíana Kristín Liborius Jónsdóttir og Arnar Már Vignisson

Á námskeiðinu fá nemendur innsýn inn í heim kvikmyndagerðarinnar.

Þau læra ýmislegt skemmtilegt tengt kvikmyndagerð; handritaskrif, leikstjórn, storyboarding, kvikmyndaleik, framleiðslu, hljóðupptökur og ýmislegt sem tengist því að undirbúa tökur, vera á kvikmyndasetti og búa til gott bíó. Í lok námskeiðsins fá nemendur að taka upp sína eigin stuttmynd með hjálp tökumanns sem sýnd verður á hátíðarsýningu fyrir aðstandendur.

Þú skráir þitt barn á námskeið með því að fylla út formið hér á neðan. Þegar skráning er móttekin færðu staðfestingu í tölvupósti. Krafa verður síðan send í heimabanka fyrir námskeiðsgjaldinu.

Nemendur með lögheimili í Hafnarfirði geta notað frístundastyrk.